Beint á leiðarkerfi vefsins

Áburður

Með því að kynna sér plöntuna sem á að rækta, má finna út hvaða áburðarblanda hentar best

 

Plöntur  lifa á ýmsum efnum. Um tuttugu frumefni standa aðallega að baki  þeim.

Viss frumefni tekur plantan upp í meira magni en önnur þ.e. köfnunarefni (N), fosfór (P)
og kalí (K).
Önnur efni sem ekki teljast aðalnæringarefni eru ekki síður mikilvæg.

Í stað nafna eru notaðar alþjóðlegar efnafræðimerkingar fyrir frumefnin og standa þá tölur með sem vísa í magn.

N

Köfnunarefni

P

Fosfór

K

Kalí

Ca

Kalsíum

Mg

Magnesíum

Fe

Járn

S

Brennisteinn

B

Bór

Mo

Molybden

Cu

Kopar

Zn

Zink

Co

Kolbalt

Mn

Mangan


Köfnunarefni ( N )
Köfnunarefni er eitt að þremur höfuðnæringarefnum plöntunnar, ásamt fosfór ( P )
og kalí ( K ).
Plantan notar köfnunarefni í miklu mæli til að geta myndað blaðgrænu og þar með framleitt næringu.
Of lítið köfnunarefni
Ný blöð verða gulleit vegna skorts á blaðgrænu. Vöxtur verður lítill sem enginn.
Of mikið köfnuarefni
Plöntur vaxa hratt og stoðvefurinn nær ekki að myndast í samræmi við stærð, plantan verður viðkvæmari.

Fosfór ( P )
Fosfór er mikilvægasta næringarefnið til myndunar á nýju erfðarefni og hefur því oft verið sett í samband við blómgun. Fosfór er rótarstyrkjandi.
Of lítið fosfór
Blómgun verður lítil sem engin, blaðlitur verður dökkgrænn eða jafnvel bláleitur.

Kalí ( K )
Með kalí stjórnar plantan vökvaflæði um frumurnar.
Of lítið kalí
Plönturnar verða slappar þó að nægur raki sé til staðar. Blöðin verða gulgræn eða grágræn.
Of mikið kalí
Frumuveggir springa, afleiðingarnar verða slepjulegar, vatnskenndar plöntur.

 

 


Fréttir

" Bragi " bananatré

bananar komnir á plöntuna okkar

DESEMBER TILBOÐ

Secret Jardin tjöld

Ránmaurar

Pantanir óskast sóttar

Ummæli

Rót af Jalapeno i Rainforrest
Umpottun á Jalapeno Chilli úr
Rainforest í Water farm.

 


Stjórnborð


Samskipti

InniGarðar

Upplýsingar