Gleðilegt nýtt ár
Við þökkum ánæguleg samskipti á árinu sem nú er liðið.
Á árinu 2012 stefnum að því að sinna viðskiptavinum okkar eins vel og okkur er unnt og bæta fleirum í hópinn. Við ætlum að auka vöruúrvalið smátt og smátt og gera okkar besta til að bjóða vandaðar vörur og góða þjónustu .
10. janúar nk. eru 4 ár frá því að InniGarðar opnuðu verslun. Á þeim tíma höfum við rekið verslunina á þremur stöðum.
Við byrjuðum í litlu rími á Dalveginum í Kópavogi. Þegar reksturinn var kominn á 5 staði ákváðum við að það væri tímabært að flytja sig um set.
Við vorum lánsöm og fengum ágætis húsnæði í Lynghálsinum.Það var mikill munur að reka verslunina á einum stað. Þar vorum við þar til í lok september 2011 þegar okkur bauðst að taka á leigu bjart og fallegt húsnæði í Hraunbæ 117.
Nú vinnum við hörðum höndum í nýrri og endurbættri heimasíðu. Síðan verður vonandi kominn í loftið síðar í janúar mánuði.
Með kveðju
María
Hvað er vatnsrækt ?
Að rækta í vatni, þar sem engin mold er notuð er í raun ótrúlega einfalt.
Það sem til þarf er súrefnisríkt vatn, góð næring, hiti og birta.- Þegar ræktað er í vatns-eða úðaræktunarkerfum er hægt að
hafa fullkomna stjórn á næringarupptöku plantna
- Vaxtaskeiðið verður margfalt hraðara og afurðir plantnanna
stærri og þyngri
- Þar sem enginn jarðvegur er til staðar er auðveldlega hægt
að koma í veg fyrir pöddur og aðrar óværur sem lifa td. í mold
- Hægt er að líkja næringarlausninni sem fljótandi jarðvegi
auðugum af næringu, steinefnum, snefilefnum og súrefni
Fréttir
" Bragi " bananatré
Næringin má ekki frjósa
DESEMBER TILBOÐ
Ránmaurar
Pantanir óskast sóttar
Ummæli
Leit
Samskipti







