Beint á leiðarkerfi vefsins
Að byrjaMöguleikarTilboð

Gleðilegt nýtt ár

Við þökkum ánæguleg samskipti á árinu sem nú er liðið.
Á árinu 2012 stefnum að því að sinna viðskiptavinum okkar  eins vel og okkur er unnt og bæta fleirum í hópinn. Við ætlum að auka vöruúrvalið smátt og smátt og gera okkar besta til að bjóða vandaðar vörur og góða þjónustu .

10. janúar nk. eru 4 ár frá því að InniGarðar opnuðu verslun. Á þeim tíma höfum við rekið verslunina á þremur stöðum.
Við byrjuðum í litlu rími á Dalveginum í Kópavogi. Þegar reksturinn var kominn á 5 staði ákváðum við að það væri tímabært að flytja sig um set.
Við vorum lánsöm og fengum ágætis húsnæði í Lynghálsinum.Það var mikill munur að reka verslunina á einum stað. Þar vorum við þar til í lok september 2011 þegar okkur bauðst að taka á leigu bjart og fallegt húsnæði í Hraunbæ 117. 

Nú vinnum við hörðum höndum í nýrri og endurbættri heimasíðu. Síðan verður vonandi kominn í loftið síðar í janúar mánuði.

Með kveðju

María


Hvað er  vatnsrækt ?



Að rækta í vatni, þar sem engin mold er notuð er í raun ótrúlega einfalt.

Það sem til þarf er súrefnisríkt vatn, góð næring, hiti og birta.
  • Þegar ræktað er í vatns-eða úðaræktunarkerfum er hægt að
    hafa fullkomna stjórn á næringarupptöku plantna
  •  Vaxtaskeiðið verður margfalt hraðara og afurðir plantnanna
    stærri og þyngri
  • Þar sem  enginn jarðvegur er til staðar er auðveldlega hægt
    að koma í veg fyrir pöddur og aðrar óværur sem lifa td. í mold
  • Hægt er að líkja næringarlausninni sem fljótandi jarðvegi
    auðugum af næringu, steinefnum, snefilefnum og súrefni 

Fréttir

" Bragi " bananatré

bananar komnir á plöntuna okkar

DESEMBER TILBOÐ

Secret Jardin tjöld

Ránmaurar

Pantanir óskast sóttar

Ummæli

 Frábær hugmynd 
Binni 
Brynjar sendi okkur þessa mynd. Hann hefur áhuga á að rækta sér góð krydd út á allan fiskinn sem hann ætlar að veiða í sumar. Brynjar festi járnvinkil með viðeigandi fatningu undir efri skápinn á eldhúsinnréttingunni og setti í 125W gróðurperu. Einföld og snjöll hugmynd. Í þessu kerfi er tilvalið að forrækta og fullrækta plöntur sem ekki þurfa mikið rími.


*******
pH og Ec tafla
pH viðmiðunartafla - sýrustig
******************************  

 Von er á nýrri og
endurbætti heimasíðu
***

Við erum flutt í 
Hraunbæ 117

Hraunbær 117
  ****************************** 

Autopot LOGO 
AutoPot
nýtt á Íslandi
******************************

Logo AtamiLogo GHESecret Jardin LOGO



                                                            


Stjórnborð


Samskipti


Upplýsingar